Velkomin í gistihúsið á Bessastöðum
Gistihúsið er í nýlega endurgerðu húsi sem byggt var árið 1937. Hér er mjög friðsælt og auðvelt að hlaða batteríin. Garðurinn við húsið er stór og mikið fuglalíf þar, sem og á landareigninni allri. Húsið er nálægt sjónum, þó þarf að labba dálitlar brekkur til að komast að honum. Að stoppa við í fjörunni og hlusta á náttúruna jafnast á við margra tíma hugleiðslu. Mikið er um æðarfugl og aðra sjófugla og ef maður er heppinn hittir maður sel í fjörunni og jafnvel tófu og þeir heppnustu geta séð hval úti á firðinum
Verið velkomin að kíkja til okkar og bóka gistingu í dag eða meira. Margir sem bóka hjá okkur skrifa í gestabókina að þeir vildu óska að þeir hefðu bókað fleiri en eina nótt. Hér á heimasíðunni okkar getið séð meiri upplýsingar um gistihúsið, eins getið þið fræðst um hrossaræktina okkar og kúabúskapinn.
Á fésbókinni má finna okkur undir Bessastaðir Guesthouse og er hægt að senda okkur skilaboð þar í gegn. Einnig getið þið sent okkur tölvupóst til að bóka gistingu í [email protected]. Þó væri best að þið væruð búin að skoða t.d. airbnb bókunarsíðun til að sjá hvaða dagsetningar eru lausar. Hér er sú síða: Booking the house. Með því að bóka beint í gegnum tölvupóst eða fésbók þá losnið þið við 15% bókunargjald, eins losnið þið við verðbreytingar vegna gengisþróunar.
Verð fyrir tvo í einn sólarhring er kr. 15.000, svo bætast við 3.000 kr. fyrir hvern gest allt að 6 gestum, en við leyfum helst ekki fleiri en 6 gesti í húsinu.
Sérstakt tilboð verður sumarið 2020 þar sem húsið verður leigt út fyrir allt að 6 gesti á kr. 25.000 nóttina. Ef leigðar eru þrjár nætur eða meira þá kostar nóttin 20.000 kr.
Gestum er velkomið að hafa með sér hund, ef hann er vel húsvanur og hafður í bandi úti. Hundar eru algerlega á ábyrgð gestanna sem koma með þá. Hér eru bæði hross, kýr og kálfar auk heimilishundsins þannig að ókunnir hundar sem ekki þekkja til geta gert usla.
Eins geta gestir komið með reiðhestana sína með sér og við útvegað þeim beitarhólf fyrir þá. Hér í Húnavatnssýslum eru frábærar reiðleiðir.

GistihúsiðVið bjóðum upp á gistingu í gömlu uppgerðu íbúðarhúsi hér á landareigninni. Frábær aðstaða til að koma og slaka á í sveitinni, njóta náttúrunnar í botn og útsýnisins. Við erum mitt á milli Akureyrar og Reykjavíkur og stutt að skreppa héðan til að skoða Húnavatnssýslurnar, Dalina og á Strandirnar.
|
BókunÁ bókunarvefjum booking og airbnb getið þið séð nánari upplýsingar um gistihúsið með þvi að leita að Bessastadir guesthouse. Þar getið þið líka séð hvaða dagar eru lausir og bókað gistingu.
Með því að bóka beint á netfanginu [email protected] sparið þið 15% bókunargjald. |
NágrenniðÝmislegt skemmtilegt er hægt að gera hér í nágrenninu. Skoðið það barasta með því að klikka á flipann hér fyrir neðan.
|